Bókasafn Kópavogs

Megnið af safnkosti Bókasafns Kópavogs og Lindasafns er til almennra útlána að undanskildum handbókum og hluta tímarita. Sýna þarf persónuskilríki

Útlánareglur

Megnið af safnkosti Bókasafns Kópavogs og Lindasafns er til almennra útlána að undanskildum handbókum og hluta tímarita.

  • Sýna þarf persónuskilríki við móttöku á lánþegaskírteini.
  • Lánþegaskírteini eru afhent án endurgjalds. Árgjaldið er samkvæmt í gjaldskrá.
  • Greiða þarf árgjald einu sinni á ári.
  • Greiðsla árgjalds gefur lánþega einnig aðgang að Bókasafni Hafnarfjarðar, Bókasafni Garðabæjar og Bókasafni Álftaness.
  • Lánþegi skal framvísa skírteini sínu í hvert sinn sem safnefni er fengið að láni.
  • Yngri en 18 ára, ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá skírteini endurgjaldslaust. Einnig atvinnulausir, gegn vottorði frá Kópavogsbæ.
  • Yngri en 12 ára þurfa skriflega ábyrgð foreldris eða forráðamanns. Ábyrgðareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu bókasafnsins.
  • Skírteinishafi (eða ábyrgðarmaður hans) ber ábyrgð á öllum gögnum sem skráð eru á hans nafn.
  • Lánþegaskírteinið er hægt að nota í öllum aðildarsöfnum Gegnis.

  • Lánstími safnefnis er yfirleitt 30 dagar, nema annars sé getið.
  • Geisladiskar með tónlistarefni eru yfirleitt lánaðir í 7 daga.
  • Myndbönd eru lánuð í 2 daga, fræðslumyndir í 7 daga.
  • Fyrir hvern umfram dag greiðist sekt samkvæmt gjaldskrá.
  • Endurnýja má lán 2svar sinnum, ef engin frátekt liggur fyrir.
  • Hægt er að endurnýja í safninu, á Gegnir.is eða í gegnum síma eða tölvupóst.
  • Hægt er að taka frá efni, sem er í útláni. Frátekt kostar 200 kr. fyrir hverja bók.
Lánþega ber að tilkynna til bókasafnsins samstundis ef skírteini glatast.

Nýtt skírteini fyrir glatað kostar 500 kr.

Glatist eða skemmist safnefni í vörslu lánþega greiðir hann andvirði þess.

Viðmiðunargjald fyrir glötuð gögn er samkvæmt gjaldskrá.

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf