Bókasafn Kópavogs

Frá fyrstu tíð leitaðist starfsfólk og stjórn Bókasafns Kópavogs við að sinna víðtæku menningarhlutverki í bæjarfélaginu, m.a. með sýningum og upplestri

Viðburðir, sýningar, fyrirlestrar

Frá fyrstu tíð leitaðist starfsfólk og stjórn Bókasafns Kópavogs við að sinna víðtæku menningarhlutverki í bæjarfélaginu, m.a. með sýningum og upplestri úr bókum skálda og rithöfunda. Frá árinu 1996 hafa verið sýningar í til þess gerðum sýningarkössum, staðsettum innan um safngögn í útlánasal Aðalsafns.

Árið 2004 var ákveðið að efna til fyrirlestraraðar um ákveðið efni og fengnir málsmetandi aðilar til að fjalla um það í Kórnum, fjölnotasalnum í Hamraborg. Ritlistarhópar hittast í Aðalsafni og hefur starfsmaður frá Bókasafni haldið utan um þá. Hannyrðaklúbbur var stofnaður í safninu 5. október 1998 og hittist óreglulega og með hléum. Frá hausti 2009 hefur verið góð mæting.

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Veftré
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf