Sögustundir á Lindasafni
Í Lindasafni eru sögustundir fyrir 3-6 ára börn á þriðjudögum kl. 10.00 frá 1. október til 30. apríl. Í sögustundum er
lesið fyrir börnin, þeim sagðar sögur og farið með vísur og þulur. Einnig er spjallað við börnin um lesefnið.
Sögustundir á aðalsafni
Yfir vetrartímann, frá 1.okt. til 30. apríl eru fastar sögustundir fyrir fyrir 3-6 ára börn. Þær eru á miðvikudögum kl. 10:00-11:00.
Einnig eru uppákomur af ýmsu tagi fyrir börnin sem við auglýsum sérstaklega.
Hægt er að panta sögustundir á aðalsafni fyrir hópa í síma 570-0450 eða með tölvupósti:
bokasafn@kopavogur.is.
Hér er Barnavefur Bókasafns Kópavogs.