Lindasafn, Lindaskóla, Núpalind 7, 201 Kópavogi, s: 564-0621, lindasafn@kopavogur.is
Flýtilyklar
Staðsetning og afgreiðslutími
|
Lindasafn |
sími: 564-0621 |
Gengið er inn um aðaldyr Lindaskóla, Núpalindarmegin, og þaðan upp á 2. hæð.
Afgreiðslutími 1. september til 31. maí:
- mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 14:00–19:00
- föstudaga frá kl. 14:00–17:00
- laugardaga frá kl. 11:00–14:00 (lokað 1. maí til 30. september)
- mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 12:00-18:00
- föstudaga frá kl. 12:00-16:00
Lindasafn er útibú frá Bókasafni Kópavogs og var opnað 22. maí 2002. Bókasafnið er rekið
í samstarfi við skólasafn Lindaskóla og er staðsett á sama stað, á annarri hæð skólans.
Safnkosturinn er nú um 25.000 eintök. Auk bóka og tímarita eru hljóðbækur, myndbönd, mynddiskar, myndasögur og tungumálanámskeið
lánuð út. Dagblöðin eru keypt á safnið og er góð aðstaða til að lesa.
Sögustundir í Lindasafni
Í Lindasafni eru sögustundir fyrir 3-6 ára börn á þriðjudögum kl. 10.00 frá 1. október til 30. apríl. Í sögustundum er
lesið fyrir börnin, þeim sagðar sögur og farið með vísur og þulur. Einnig er spjallað við börnin um lesefnið.
Hægt er að panta sögustundir fyrir hópa utan fastra tíma í síma 564-0621 eða með tölvupósti: lindasafn@kopavogur.is.
Viðkomustaður strætisvagna:
- Leið 2 er á Fífuhvammsvegi v/ Lindir
- Leið 28 er á Lindarvegi við þjónustukjarna.
Forstöðumenn: Margrét Sigurgeirsdóttir og Sigrún Guðnadóttir.




