Lindasafn er útibú Bókasafns Kópavogs og er rekið af Kópavogsbæ samkvæmt lögum nr. 36/1997 um almenningsbókasöfn, en í þeim segir meðal annars:
„Almenningsbókasöfn eru upplýsinga og menningarstofnanir. Hlutverk þeirra er að veita fólki, bæði börnum og fullorðnum, greiðan
aðgang að fjölbreyttum bókakosti og öðrum miðlunargögnum, þar á meðal tölvubúnaði og upplýsingum á
tölvutæku formi. Þau skulu efla frjálsan og óheftan aðgang almennings að upplýsingum og þekkingarmiðlum“.
Hér má sjá hvernig lögin urðu
tilfrá því frumvarp var lagt fram í desember 1996 og þar til lögin voru samþykkt í maí 1997.