Megnið af safnkosti Lindasafns er til almennra útlána að undanskildum handbókum og hluta tímarita.
- Sýna þarf persónuskilríki við kaup á skírteini.
- Lánþegaskírteini eru ókeypis en árgjaldið er 1300 krónur. Skírteinin gilda í 1 ár.
- Endurnýja þarf lánþegaskírteini einu sinni á ári.
- Lánþegi skal framvísa skírteini sínu í hvert sinn sem safnefni er fengið að láni.
- Yngri en 18 ára, ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá skírteini endurgjaldslaust. Einnig atvinnulausir, gegn
vottorði frá Kópavogsbæ.
- Yngri en 12 ára þurfa skriflega ábyrgð foreldris eða forráðamanns. Ábyrgðareyðublöð liggja
frammi í afgreiðslu bókasafnsins.
- Skírteinishafi (eða ábyrgðarmaður hans) ber ábyrgð á öllum gögnum sem skráð eru á hans
nafn.
Bókasafnsskírteinin gilda einnig í Bókasafni
Kópavogs, Bókasafni Hafnarfjarðar, Bókasafni Garðabæjar og Bókasafni Álftaness og má
bæði fá lánað og skila safnefni í þeim söfnum.
- Lánstími safnefnis er yfirleitt 30 dagar, nema annars sé getið.
- Geisladiskar með tónlistarefni eru yfirleitt lánaðir í 14 daga.
- Myndbönd eru lánuð í 2 daga, fræðslumyndir í 14 daga.
- Fyrir hvern umfram dag greiðist sekt samkvæmt gjaldskrá.
- Endurnýja má lán 2svar sinnum, ef engin frátekt liggur fyrir.
- Hægt er að endurnýja í safninu, á Gegnir.is eða í gegnum síma eða tölvupóst.
- Hægt er að taka frá efni, sem er í útláni. Athugið að þó er ekki hægt
að taka frá nýtt efni, ,,jólabækur" á tímabilinu 15. október til 1. febrúar. Er það gert til að auka líkurnar á
að spennandi efni bíði þín í hillunni þegar þú heimsækir safnið.
Lánþega ber að tilkynna til bókasafnsins samstundirs ef skírteini glatast.
Nýtt skírteini fyrir glatað kostar
500 kr.
Glatist eða skemmist safnefni í vörslu lánþega greiðir hann andvirði
þess.
Viðmiðunargjald fyrir glötuð gögn:
- Bækur og hljóðbækur 3.000 kr.
- Tungumálanámskeið 3.000 kr.
- Myndbönd og mynddiskar 2.500 kr.
- Tónlistardiskar 2.000 kr.
- - Bæklingur með tónlistardiskum 2.000 kr.
- Nótur og snældur 1.000 kr.
- Tímarit 200 kr.
Ef um ný gögn er að ræða (innan við tveggja ára) gildir innkaupsverð.